eða hvað???
ég tók þessa færslu frá siggu mjög nærii mér og henti mér í það
strax að koma með einn pistill eða svo!! enn þá eru nokkrar skutlur
sem ekki hafa séð sér fært að kommenta eða láta vita af sér að þær
viti af þessari síðu, það eru allavega anna maría og nancy og
einhverjir fleiri, þið hinar fáið það verkefni að pikka í þær og
segja þeim frá þessu!!
er sko alveg til í hitting, velkomnar til norge, bý í 34° fermetrum
en á ágætis garð með tveimur bekkjum!

og frábæra nágranna!

svo fint allt sammen
en allavega af mér er það að frétta að ég er flutt til norge búin
að búa hér í heila 8 daga, byrjaði svo í dag að fara í það að finna
mér vinnu, allt gengur frekar hægt hér og tekur tíma í að fá
kennitölu og alls konar dótarí hér, þannig að einn góður maður
kallaður lars sem á íslenska konu en þau eiga nokkra veitingastaði
hér sem eru íslenskir kokkar að vinna á hann var í dag að aðstoða
mig með að hringja hingað og þangað og segja mér hvernig ég ætti að
snúa mér í þessum vinnumálum og á meðan tekur þetta auðvitað
einhvern tima þannig hann bauð mér vinnu hjá sér þar til ég fengi
eitthvað annað. en allavega sú vinna felst í UPPVASKI já ég er
orðin uppvaskari solla, og það besta við þetta er að það er BETUR
BORGAÐ EN SJÚKRALIÐI Á ÍSLANDI eða allavega byrjunarlaunin í dagv
innu!!! hhaa heyriði það en norðmenn vinna svo lítið, bara 6-7 tíma
á dag þannig það er betra að vera sjúkraliði heima og vinna meira,
en þetta er bara tímabundið starf og er fínt að fá að gera eitthvað
heldur en að hanga bara heima og bíða eftir einhverri annarri
vinnu!
já annars líst mér bara ágætlega á þennan stað, þetta er
svokallaður draugabær yfir veturinn, en svaka sumarbær og mikið líf
og fjör hér þá, þannig ég er að hugsa um að leggjast í dvala og
koma til baka í maí!

hljómar vel ekki satt, hér þarf maður svo
að labba mikið enginn bill til þannig ég fæ örugglega fljótlega
anorexíu á háu stigi en til allrar hamingju er nammibúð í götunni
minni sem selur ÍSLENSKT NAMMI, alveg heilar 3 gerðir þannig þetta
verður ekked vandamál, hafiði engar áhyggjur ég mun ekked grennast!
en þetta er komin ágætisromsa held ég bara, en voru sumir ekki að
gifta sig eða eru að fara að gifta sig eða hvernig er þetta!

bið kærlega að heilsa frá norge landinu þar sem EKKERT er
ókeypis
kiss kiss Sólveig
hey meðan ég man þá er ég komin með nýtt númer 00 47 97107712 já
bara ef ykkur leiðist!